
Consummation
Klúbbtónleikar Stórsveitar Reykjavíkur: Eitt lykilverk stórsveitabókmenntana, Consummation eftir Thad Jones verður flutt í heild sinni.
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Þjóleikhúskjallaranum mánudaginn 17. Maí kl. 21. Á efnisskrá verður öll tónlistin af einni frægustu stórsveitaplötu allra tíma; Consummation með Stórsveit Thad Jones/Mel Lewis frá 1970, en hluti hennar var einmitt hljóðritaður í maímánuði það ár, fyrir réttum 40 árum. Tónlistin er öll eftir Thad Jones (1923-86), einn helsta meistara big band tónlistar síðustu áratuga. Auk laganna 8 af Consummation verða flutt nokkur lykilverk af efnisskrá stórsveitar Thad Jones og Mel Lewis. Stjórnandi á þessum tónleikum verður Sigurður Flosason. Hann hefur nokkrum sinnum áður stjórnað stórsveitinni, m.a. á fyrri klúbbtónleikum sveitarinnar þar sem önnur verk Thad Jones hafa verið á efnisskrá.
Thad Jones var trompetleikari með hljómsveit Count Basie á árunum 1954-63. Ásamt trommuleikaranum Mel Lewis stofnaði hann árið 1965 The Thad Jones/Mel Lewis Jazz Orchestra, en sú hljómsveit leikur enn á hinum þekkta jazzklúbbi The Village Vanguard í New York undir nafninu The Village Vanguard Jazz Orchestra. Jones yfirgaf sveitina árið 1978 og flutti til Danmerkur. Þar stjórnaði hann m.a. Stórsveit danska ríkisútvarpsins og stofnaði síðar Eclipse stórsveitina. Eftir lát Count Basie árið 1984 flutti Thad Jones aftur til Bandaríkjanna, tók við stjórn þeirrar sveitar og starfaði með henni til dauðadags árið 1986. Thad Jones er almennt talinn í hópi mikilvægustu tónskálda stórsveitasögunnar og hafa tónsmíðar hans og útsetningar haft gríðarleg áhrif. Kraftmikil og áleitin tónlist hans hefur oft skapað magnaða stemmningu, ekki síst á klúbbum.
Aðgangseyrir er kr. 1.500, en kr 1.000 fyrir námsmenn og eldri borgara.
 |